Gangmyllan
  • Fréttir
  • Gangmyllan - ræktun
  • Söluhross
  • Reiðkennsla
  • Bergur og Olil
  • Gangmyllan
  • Hafa samband
  • Syðri-Gegnishólar
  • Gamlar myndir
  • Greinar
  • Panta undir stóðhest

Komið hús

Details
Created: 27 March 2009
21Mikið hefur gerst á síðustu dögum hér á Gegnishólum. Yleiningarnar komu frá Reykholti í lok síðustu viku og nú sléttri viku síðar er komin hin myndarlegasta reiðhöll. Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki alltaf verið hagstætt.

Byrjað á að klæða húsið

Details
Created: 23 March 2009
24Yleiningarnar eru komnar á staðinn og byrjað er að klæða reiðhöllina. Í þessum verkþætti er veðrið og vindstyrkur mikill áhrifavaldur um gang verksins en allt hefur gengið vel og samkvæmt áætlun.

Burðarvirkið risið

Details
Created: 15 March 2009
23Nú er að mestu búið að reisa burðarvirkið að reiðhöllinni. Gekk sú vinna vel og voru límtrésrammarnir reistir á rúmri viku. Þá er eftir að setja þverböndin í gaflana og klára ýmsan frágang.

Annar krani kominn á svæðið

Details
Created: 11 March 2009
22Annar krani kom á svæðið í dag og því ætti enn meiri gangur að komast á framkvæmdina. Uppsetningu kranans verður lokið í kvöld eða nótt og áætla Smíðandamenn að reising límtrésins verði langt kominn í vikulok.

Reising gengur vel

Details
Created: 11 March 2009
177Uppsetning á burðarvirkinu gengur vel og ljóst er að Smíðandamenn kunna vel til verka við þessa verkþætti og hver maður þekkir sitt hlutverk.

Byrjað á reisingu

Details
Created: 10 March 2009
16 Byrjað var á að reisa burðarvirki reiðhallarinnar í dag. Við vonum að fall sé fararheill því kraninn sem kominn var á staðinn til að notast við reisingu reiðhallarinnar reyndist bilaður. Von er á öðrum krana en Smíðandamenn geta bjargað sér eitthvað með venjulegum bílkrana á meðan beðið er.

Límtréð komið

Details
Created: 09 March 2009
15Tveir flutningabílar komu í dag með límtréð frá Flúðum. Von er á krana á staðinn á morgun og er ætlunin að byrja strax á að reisa húsið.

Sökkullinn tilbúinn

Details
Created: 05 March 2009
12Smíðandamenn hafa lokið við gerð sökkulsins fyrir reiðhöllina og áætlað er að byrjað verði að reisa límtréð í næstu viku. Límtréð er tilbúið á Flúðum og er von á því á byggingastað næstu daga.

Reiðvegagerð framundan

Details
Created: 20 February 2009
11Hluti þess jarðvegs sem mokað var upp reyndist vera móhella og varð að rippa henni upp með stórtækum vélum. Að sögn Braga á Efri og hans manna er hér um að ræða nokkur þúsund rúmmetra af efni sem ákjósanlegt er að nota í reiðvegi. Er þetta okkur mikil hvatning fyrir því að huga að reiðvegagerð hér að jörðinni með vorinu .

Vetur konungur í flóanum

Details
Created: 30 January 2009
10Veturinn mynnti vel á sig með frosti en stillu og sólin skapaði skemmtilega birtu á Syðri Gegnishólum í dag, nú á miðjum þorra.

Frost tefur steypuvinnu

Details
Created: 28 January 2009
09Eitthvað hafa veðurguðirnir svikið gerða samninga því ekki hefur viðrað alla daga undanfarið til steypuvinnu en inn á milli hafa komið frostlausir dagar og þá gerast hlutirnir hratt.

Sökkulgerð hefst

Details
Created: 21 January 2009

08Smíðandamenn eru mættir og byrjaðir á sökklinum fyrir reiðhöllina.

Það er eins í þessari framkvæmd eins og öðrum íslenskum byggingarframkvæmdum að manni finnst ekkert gerast fyrr en framkvæmdirnar eru komnar upp úr jörðinni.

Jarðvegsframkvæmdum að ljúka

Details
Created: 15 January 2009
06Jarðvegsframkvæmdum vegna reiðhallarinnar er senn að ljúka og miklu magni af jarðvegi hefur verið færður úr stað og öðru efni ekið í staðinn. Í heildina hefur um 20.000 rúmmetrum verið mokað upp og notaðir til að móta landið á öðrum stað.

Stóðhestarnir komnir á hús

Details
Created: 26 December 2008
14Þá er framkvæmdum lokið í gamla fjósinu og 16 stóðhestar komnir á hús. Þar af eru 13 þeirra í okkar eigu. Því er ekki að neita að móðir náttúra var okkur ráðgáta vegna þess að vorið 2005 fæddust okkur xx folöld og af þeim voru aðeins xx merfolöld enn xx hestar.

Jarðvegsframkvæmdir hafnar

Details
Created: 05 December 2008
Framkvæmdir við reiðhöllina eru hafnar. Byrjað er að jarðvegsskipta og móta landið þar sem höllin á að rísa. Ljóst er að þeir eru þó nokkrir rúmmetrarnir sem þurfa að víkja og gengur verkið vel í umsjón Braga á Efri Gegnishólum og hans manna.

Íslenskt já takk

Details
Created: 02 December 2008

05Reiðhöllin verður frá Límtré á Flúðum með einangruðum yleiningum.

Búið að semja við BM Vallá um kaup á húsi með límtrés burðarvirki og vegg- og loft einingar frá Yleiningum. Þá hefur verið samið við Smíðanda á Selfossi um gerð sökkuls og reisingu hússins. Sannkallað sunnlenskt samstarf þar sem límtréð kemur frá Flúðum, Yleiningarnar frá Reykholti og Smíðandi frá Selfossi. Einnig það að öll fyrirtækin auk Gangmyllunnar eru í Árnessýslu. Reiðhöllin mun standa austan við hesthúsið á móts við núverandi rúllustæði. Nú er hönnunarferlið og leyfisumsóknir í vinnslu og jarðvinnuþættir í skoðun.

Landið mótað

Details
Created: 25 November 2008
07Uppmokstrinum úr grunninum hefur verið ekið suður fyrir bæinn til að jafna út landið þar. Mikið magn af jarðvegi hefur verið fluttur til og notaður til að móta landið þar sem þess er þörf.

Gamla fjósið verður stóðhestahús

Details
Created: 23 November 2008

13Fjósinu verður breytt í stóðhestahús.

Við höfum ákveðið að breyta gamla fjósinu og koma þar upp aðstöðu fyrir 16 stóðhesta. Búið er að rífa innan úr því allar innréttingar og nú er verið að brjóta af gólfplötunni og jafna hana. Segist Bergur ætla að vera kominn inn hér með hesta fyrir jól.

Reiðhöll skal það vera

Details
Created: 10 November 2008

04Þá liggur það fyrir að reiðhöll verður byggð á Syðri Gegnishólum.

Undirbúningsferlið er komið í gang og staðsetning nú ákveðin. Hugmyndin er að reisa 1000 fermetra reiðhöll eða 20 x 50 metra og unnið er við að leita tilboða í alla þætti framkvæmdarinnar.

Reiðskemma reiðskáli, eða reiðhöll

Details
Created: 08 September 2008
03Stefnumótun og framtíðaráætlanir okkar miða að því að hér verði byggð aðstaða til tamninga og þjálfunar innandyra. Hefur okkur verið kynntir ýmsir kostir í þeim efnum, svo sem reiðskáli, reiðskemma og reiðhöll. Valkostirnir eru margir og að mörgu að hyggja.
  1. Hesthúsið
  2. Húsakostur

Page 31 of 32

  • 23
  • 24
  • 25
  • 26
  • 27
  • 28
  • 29
  • 30
  • 31
  • 32