Gangmyllan
  • Fréttir
  • Gangmyllan - ræktun
  • Söluhross
  • Reiðkennsla
  • Bergur og Olil
  • Gangmyllan
  • Hafa samband
  • Syðri-Gegnishólar
  • Gamlar myndir
  • Greinar
  • Panta undir stóðhest

Theresa og Sprengja frá Ketilsstöðum

Details
Created: 29 August 2017

Teresa Schmelter vann T1 á Þýska meistaramótinu(Deutsche Jugendmeisterschaften)  á Sprengju frá Ketilsstöðum með miklum mun á fyrsta og öðru sæti. Hún er nú meðlimur í " German Kader" þýskalands teyminu.
Við óskum Teresu og Sprengju til hamingju.

Sprengja er undan Ljónslöpp frá Ketilsstöðum og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.

{gallery}TheresaSprengja2017{/gallery}

Brynja og Goði unnu fjórganginn

Details
Created: 27 August 2017

Brynja og Goði stóðu sig vel á Suðurlandsmótinu, þau unnu 4 gang V2 og urðu í þriðja sæti í Slaktaumatölti T4.

{gallery}BrynjaGodi2017{/gallery}

 

Passandi kynbótadómur

Details
Created: 24 August 2017

Þessi kynbótadómur passar við parið sem nú trónir efst á World Ranking listanum í fjórgangi. Þetta gerðist núna, risavaxnar hamingjuóskir til knapa og eiganda þessa mikla gæðings Elinar Holst og auðvitað til ræktendanna sem erum jú við!

{gallery}FramiBreedingJudgement2017{/gallery}

Elin efst á World Ranking listanum í fjórgangi 2017

Details
Created: 23 August 2017

Við erum mjög stolt og ánægð með að Elin og Frami eru í efsta sæti í 4 gangi á heimslistanum og að þeirra hæsta einkunn á þessu ári 7,90 er hæsta forkeppnis einkunn á þessu ári.

{gallery}ElinWRList2017{/gallery}

Keppnishestar frá Gangmyllunni erlendis

Details
Created: 22 August 2017

Þessir bræður áttu annað frábært keppnisár á þessu ári.

Ljóni frá Ketilsstöðum og knapi hans Maja Nymann Blitskov eru danskir meistarar í samanlögðum fimmgangi ungmenna í þriðja sæti í fimmgangi og fimmta sæti í skeiði. Parið vann jafnframt A flokk í Gæðingakeppni í vor með einkunnina 8,56! 

Við sendum hamingjuóskir til Maju og fjölskyldu.

 
Hlébarði frá Ketilsstöðum og hans knapi, Mara Daniella Staubli, voru í öðru sæti í fimmgangi F1 á Svissneka landsmótinu og kepptu í liði Sviss á heimsmeistaramótinu 2017 í Hollandi. Á HM í Hollandi lentu Mara og Hlébarði í sjöunda sæti í fimmgangi F1!

Við sendum hamingjuóskir til Möru og hennar fjölskyldu. 

{gallery}WC 2017 horses from Gangmyllan{/gallery}

Nýr hnakkur, Gangmyllan Katla

Details
Created: 18 August 2017

Á heimsmeistaramótinu kynntum við í samvinnu við Hilbar, nýjan hnakk sem er hannaður af Olil Amble, Bergi Jónssyni, Julio Borba og Susanne Braun. Hnakkurinn hlaut nafnið Gangmyllan Katla til heiðurs Kötlu sem vann T1 á íslandsmótinu 2017 ásamt því að hljóta fjórar tíur í kynbótadómi. 

Við væntum mikils af þessum hnakki.

 {gallery}SaddelGangmyllanKatla2017{/gallery}

Katla frá Ketilsstöðum með 4 tíur

Details
Created: 02 August 2017

Katla hlaut fjórðu tíuna á yfirliti í dag á Hellu.

Katla hefur nú hlotið 10 fyrir tölt, brokk, hægt tölt og vilja og geðslag. 

{gallery}Katla4x10{/gallery}

Myndskeiðið sýnir þau Berg keppa í meistaradeildinni 2017 í fjórgangi.

 

Katla frá Ketilsstöðum

Details
Created: 31 July 2017

Katla hlaut 3x 10,0 í dómi í dag. 

Sólin skein og Katla var í stuði. Hún fékk 10.0 fyrir brokk, vilja og hægt tölt. Ótrúlega gaman og við hæfi að þessi gæðings hryssa skuli ná þessum tölum.

Búið er að halda Kötlu þannig að vonandi er þetta byrjunin á frábærum ferli hennar sem ræktunarmeri 

{gallery}KatlaBreedingJudgement2017{/gallery}

Hugmynd frá Ketilsstöðum

Details
Created: 28 July 2017

Þessi 4 vetra uppáhalds og gæðingshryssa, Hugmynd frá Ketilsstöðum, hlaut frábæran dóm á Hellu í gær, en aðaleinkunn hennar varð 8,32.

Fyrir sköpulag fékk hún 8,02 og hæfileika 8,52. Hún hefur verið sérstök frá fyrsta degi í tamningu og kláraði þessa sýningu auðveldlega. 

Móðir hennar er Álfasteins og Framkvæmdardóttirin Djörfung frá Ketilsstöðum en hún var með 8,23 í aðaleinkunn 4 vetra 2008, þar af 8,69 fyrir hæfileika.

Faðir Hugmyndar er Aðall frá Nýjabæ, sem mér sýnist að vanti einungis 2 afkvæmi til að ná heiðursverðlaunum. 

Til gamans má geta að amma hennar og langamma hlutu báðar heiðursverðlaun fyrir afkvæmi

{gallery}HugmyndHella2017{/gallery}

Svissneskir meistarar

Details
Created: 23 July 2017

Indira Scherrer og Matthildur frá Ketilsstöðum urðu tvöfaldir Svissneskir meistarar í barnaflokki, i tölti T5 og samanlögðum fjórgangs greinum.

Þær urðu jafnframt í þriðja sæti í fimiæfingum og fjórða sæti í fjórgangi. Innlega til hamingju Indira, Roger, Sandra og Michael

{gallery}ScherrerAndMatthildur2017{/gallery}

Íslandsmótið 2017

Details
Created: 22 July 2017

Nokkrar myndir frá Íslandsmótinu 2017 af Elinu Holst og Frama frá Ketilsstöðum. Úrslitin voru langt frá þremur sigrum síðasta árs en samt góð frammistaða. Þau enduðu í öðru sæti í afar sterkum fjórgangi og í sjötta sæti í T2. Frami meiddist stuttu fyrir keppnina og teljum við það hafa haft neikvæð áhrif í úrslitunum.

 {gallery}Islandsmot2017{/gallery}

Álfakletts Afkvæmi

Details
Created: 22 July 2017

Þau eru falleg folöldin undan Álfakletti frá Syðri Gegnishólum.

{gallery}AlfakletturOffsprings2017{/gallery}

Gormur frá Selfossi

Details
Created: 16 July 2017

Okkar elsta afkvæmi undan Sveini-Hervari, enn að gera það gott í keppni. Gormur fra Selfossi, knapi  Sara Lundberg sem vann hjá okkur í tvö ár, til  hamingju Sara.

{gallery}SaraGormur{/gallery}

 

Hvati frá Ketilsstöðum

Details
Created: 07 July 2017

Hvati hefur það gott í Kaliforníu.

 {gallery}HvatiIKaliforniu{/gallery}

Myndarlegt folald

Details
Created: 04 July 2017

Er Þetta ekki frekar myndarlegt folald ? Þessa myndir voru allar teknar á frekar stuttum tíma, liklegast 10 mínútum. Honum leiðist ekki að sýna sig.  Móðir er Heilladís frá Selfossi og faðir er Krákur frá Blesastöðum.
{gallery}HeilladisKrakurson2017{/gallery}

 

Besti tími ársins

Details
Created: 01 July 2017

Skemmtilegasti tími ársins er núna.
{gallery}Mares and foals 2017{/gallery}

Álfaklettur í kynbótadómi

Details
Created: 29 June 2017

Huldumær með hryssu 2017

Details
Created: 28 June 2017

Huldumær frá Syðri-Gegnishólum er undan Álfadísi frá Selfossi og Sæ frá Bakkakoti, hún hlaut í aðaleinkunn 8,29 aðeins fjögurra vetra gömul og varð í fjórða sæti á Landsmótinu 2016 á Hólum. Henni var haldið undir Frama frá Ketilsstöðum og fæddist þessi fallega hryssa fyrir nokkrum dögum.

{gallery}Huldumaer and foal 2017{/gallery}

 

Gæðastund hjá Álfhildi og Brynju

Details
Created: 27 June 2017

þessar skemmtilegu myndir voru teknar fyrir nokkrum dögum, gæðastund hjá Brynju og Álfhildi. Við væntum afkvæmis Álfhildar og Frama seinna í sumar og hlakkar mikið til.

{gallery}BrynjaAlfhildur2017{/gallery}

Elin og Frami vinna B flokkinn

Details
Created: 13 June 2017

Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum unnu B flokk á opna gæðingamóti Sleipnis, 8,92/ 9,11. Myndirnar sýna liklega hvers vegna.
{gallery}ElinFrami Gaedingamot Sleipnir 2017{/gallery}

  1. Álfaklettur frá Syðri Gegnishólum
  2. Keppnis hryssur úr okkar ræktun
  3. Védís frá Hellubæ og folald 2017
  4. Heilladís og sonur
  5. Tíbrá og folald 2017

Page 14 of 32

  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18