Gangmyllan
  • Fréttir
  • Gangmyllan - ræktun
  • Söluhross
  • Reiðkennsla
  • Bergur og Olil
  • Gangmyllan
  • Hafa samband
  • Syðri-Gegnishólar
  • Gamlar myndir
  • Greinar
  • Panta undir stóðhest

Skeifur í röð og reglu

Details
Created: 29 September 2019

Þetta var góð framkvæmd, að koma reiðu á allar skeifurnar sem venjulega liggja í fötum og kössum og erfitt er að nota aftur.

{gallery}Skeifugeymslan 2019{/gallery}

Grýla og Álfatrú

Details
Created: 23 September 2019

Gaman að ná mynd af þessum tveimur hryssum saman, Grýla gamla frá Stangarholti og dóttirdóttir hennar Álfatrú frá Syðri-Gegnishólum. Álfatrú er undan Álfadísi frá Selfossi og Sveini-Hervari frá Þúfu í Landeyjum og er tveggja vetra gömul en Grýla er 29 vetra og eyðir ellinni á Ketilsstöðum. Álfatrú er skemmtileg blanda af ömmu sinni og mömmu útlitslega, er með breitt og sterkt bak og yfirveguð. Ellen vinkona lék allskonar kúnstir til að fá þær til að pósa en þær urðu í mesta lagi hissa held ég.

{gallery}Gryla og Alfatru 2019{/gallery}

Morgunstund

Details
Created: 21 September 2019

Morgunstund gefur gull í mund. Hluti af stóðinu hvilir í klettunum heim við bæ, hryssur og geldingar.Fyrir aftan sést hluti af fjallinu sem heitir Ketilsstaðaaxlir.
{gallery}Morgunstund haustid 2019{/gallery}

Á heimaslóðum

Details
Created: 20 September 2019

Fimm fallegar brúnar veturgamlar hryssur í fjallinu á Ketilsstöðum, nú hefði verið gott að vera með örmerkjalesarann.
Þær eru vel ættaðar, Álfadís/Stáli frá Kjarri, Álfhildur/Spaði frá Stuðlum, Aðaldís/Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum, Vænting/Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum og Álfastjarna og Aðall frá Nýjabæ.
{gallery}Heimaslodir 2019{/gallery}

Ketilsstaðir

Details
Created: 15 September 2019

{gallery}Ketilsstadir 2019{/gallery}

Þrifin að klárast

Details
Created: 09 September 2019

Allt að verða tilbúið fyrir frumtamningar.

{gallery}Thrifin ad klarast 2019{/gallery}

Tími þrifa og viðhalds

Details
Created: 08 September 2019

Skemmtilegur tími fer nú í hönd með þrifum og viðhaldsvinnu. Þessa dagana er listakonan Josefina Morell að mála og skreyta hjá okkur.

{gallery}Josefina Morell malar hja okkur{/gallery}

Námskeiðslotu lokið

Details
Created: 06 September 2019

 Borba námskeiði er nú lokið, þar fyllist maður af hugmyndum, orku og lífsgleði. Þessi fallega hryssa á myndinni heitir Yrsa frá Selfossi, hún er 6 vetra gömul dóttir Friggjar frá Selfossi og Álffinns frá Syðri-Gegnishólum.

{gallery}Yrsa fra Selfossi{/gallery}

Móttaka ráðherra á norðurlöndum

Details
Created: 29 August 2019

Við fengum skemmtilega heimsókn siðastliðinn mánudag frá landbúnaðarráðherrum allra norðurlandanna og þeirra starfsfólki. Við kynntum starfsemi okkar, íslenska hestinn og hvaða áhrif okkur finnst hann hafa á norrænt samstarf. Þetta var áhugasamur, hress og skemmtilegur hópur sem stoppaði dágóða stund, Jelena Ohm kynnti starfsemi Horses of Iceland og við sýndum þeim þjálfunar stund í reiðhöllinni.

{gallery}Radherrar i heimsokn haust 2019{/gallery}

Álfaklettur hæst dæmdur á Selfossi

Details
Created: 25 August 2019

Hér eru myndir teknar af Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum er hann hlaut aðaleinkunn 8,67 í kynbótadómi fyrir nokkrum dögum. Fyrir sköpulag var hann með 8,73, þar af 9.0 fyrir höfuð, bak og lend og hófa og 9,5 fyrir samræmi. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,63, þ.a 9,0 fyrir tölt og vilja. Móðir hans er Álfadís frá Selfossi og faðir er Stáli frá Kjarri. Knapi Bergur Jónsson

{gallery}Alfaklettur fra Sydri - Gegnisholum efstur 2019{/gallery}

Sumir dagar

Details
Created: 23 August 2019

Svona eru sumir dagar hjá okkur.

{gallery}Days of cleaning 2019{/gallery}

Framtíðin er hér

Details
Created: 21 August 2019

Sónar mynd af fyli undan Kötlu og Frama frá Ketilsstöðum. Spennandi möguleikar á útkomunni.

{gallery}Katla and Frami foal in the making{/gallery}

Stillir frá Syðri - Gegnishólum

Details
Created: 19 August 2019

Tókum þessar myndir í fyrradag af Stilli frá Syðri-Gegnishólum. Móðir hans er Gráhildur frá Selfossi 8,12, sem hefur gefið okkur fimm hross yfir 8,0 og faðir er Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum. Stillir er 1,50 á stærð og því í stærra lagi, aðaleinkunn hans er 8,04.

{gallery}Stillir fra Sydri-Gegnisholum 2019{/gallery}

Álfarinn á nýjum stað

Details
Created: 18 August 2019

Álfarinn er kominn á nýja heimilið sitt hjá Julia og Gregor Dorn, Gestüt von Treveris í Þýskalandi. Við óskum þeim hamingju og velgengni.

{gallery}Alfarinn a nyjum stad{/gallery}

Álfadísar synir

Details
Created: 15 August 2019

Þessi skemmtilega mynd var tekin í lok júlí rétt áður en Álfarinn fór úr landi. Fimm synir Álfadísar frá Selfossi sem voru í þjálfun.

Frá vinstri, Ljósálfur undan Lord frá Vatnsleysu, Álfarinn undan Keili frá Miðsitju, Álfaklettur undan Stála frá Kjarri, Svartálfur undan Aríon frá Fróðholti og svo Álfgrímur undan Orra frá Þúfu.

{gallery}Alfadisar synir 2019{/gallery}

Eftir Berlín

Details
Created: 14 August 2019

Þá er ég loksins komin heim frá HM í Berlín og get tekið mér smá tíma til að melta upplifunina. Þetta var frábær tími, maður upplifði vináttu og liðsheild. Öll umgjörð um liðið okkar var til fyrirmyndar og var hrein unun að upplifa það, takk. 
Sumt mátti auðvitað betur fara en okkar fólk leysti það eins vel og kostur var. Berlín er óhestvænn staður svo ekki sé meira sagt og verulega erfitt að koma með hesta frá Íslandi á slíkan stað. Eflaust að hluta til heppni hverjir koma vel frá því og hverjir ekki.

Hvað mig varðar, þá valdi ég að fara með minn kærasta hest sem ég í forkeppni bjó til töfrastund á (gæsahúð) sem eftir á að hyggja skipti mig mestu máli, við Álfarinn náðum að sýna getu okkar. Á úrslitadeginum var allt breytt og tilfinningin aldrei rétt frá byrjun, hvað olli því get ég einungis velt fyrir mér. Það sem kemur upp í huga mér aftur og aftur, eru allt of miklar breytingar á stuttum tíma, sem sagt engin afsökun bara vangaveltur.

Sigurbjörn, Sigurður, Anton, Arnar Bjarki, landsliðsnefnd, liðsmenn og aðstoðarmenn og síðast en ekki síst Erlendur, kærar þakkir, þið eruð snillingar og ég er afar stolt að vera í íslenska landsliðinu.

{gallery}Alfarinn and Olil in Berlin{/gallery}

Forkeppni í fimmgangi

Details
Created: 08 August 2019

Forkeppni í 5 gangi á HM lokið og við Álfarinn efst í 5 gangi með 7,53.

Video frá forkeppninni

Æfingar í Berlín

Details
Created: 01 August 2019

Þessi mynd var tekin í dag af Guðni Halldórsson í lok fyrstu æfingu í Berlin. Þarna löbbum við Bergur og Álfarin undir Brandenburgar hliðinu . Ekkert smá vígalegur inn/útgangur.

{gallery}AEfingar i Berlin 2019{/gallery}

Landsliðsbolurinn 2019

Details
Created: 26 July 2019

Vilfríður Fannberg Sæþórsdottir tók þessa skemmtilegu mynd í gær, þegar við vorum að afhenda reiðtygi og allt sem fylgir hestunum. Þetta er að fara að gerast, við sem ætlum að taka á móti hestunum í Liege förum á morgun, og hestarnir á sunnudaginn. Áfram ísland!

{gallery}WM bolur 2019{/gallery}

Katla köstuð

Details
Created: 19 July 2019

Katla frá Ketilsstöðum kastaði jörpu merfolaldi í dag okkur til mikillar ánægju. Miðað við myndina gæti litið út fyrir að Bergur sé full óþreyjufullur að komast á bak, Sú litla kreppir lend, lyftir í vinkil með eyrun fram, er hægt að biðja um meira?

{gallery}Katla kostud 2019{/gallery}

  1. Sónarskoðanir hjá Gangmyllunni
  2. Álfarinn í úrslitum Íslandsmeistaramóts 2019
  3. Álfarinn vinnur fimmganginn
  4. Bergur og Álfgrímur T1 Íslandsmót
  5. Djörfung köstuð

Page 2 of 32

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10